Reykjavík barnanna - Here is Reykjavík!

Author:
Margrét Tryggvadóttir

Illustrator:
Linda Ólafsdóttir

Publisher: 
Forlagið (Iceland, 2021)

Other languages: 
Forlagið (Iceland, 2023)

Buy Here is Reykjavik Buy Reykjavik barnanna

Buy Fine Art Prints

Vissu þið að einu sinni var Reykjavík lítið meira en nokkur hús við eina götu? Og að einu sinni bjó fólk í bröggum þar sem Hallgrímskirkja stendur nú?

Í Reykjavík barnanna er stiklað á stóru um sögu höfuðborgarinnar okkar, frá því áður en fyrstu íbúarnir tóku sér þar bólfestu og þar til hún varð sú fjölbreyttra og líflega borg sem við þekkjum. Í máli og myndum er sagt frá mannlífi og menningu, blokkum og bröggum, gatnakerfi og götulýsingu, skautasvellum og skolpræsum, útsýni og útivist, og öllu mögulegu öðru sem finna má í Reykjavík.

Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir hlutu mikið lof fyrir Íslandsbók barnanna sem hreppti meðal annars Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og Fjöruverðlaunin. Hér beina þær kastljósinu að Reykjavík, höfuðborg allra landsmanna, í bók sem er í senn fróðleiksnáma og listaverk fyrir alla fjölskylduna.

Verðlaun og viðurkenningar:
Tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021
Fjöruverðlaunin 2022 í flokki barna- og unglingabókmennta.
Tilnefning til Hagþenkis 2021 
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir best myndlýstu bókina.
* Verðlaun FÍT 2022, silfur í flokki almennra myndlýsinga.